Reikna vexti
Vaxtareikningur
Sláðu inn upplýsingar um tryggingu til að reikna út vexti
Algengar spurningar
Hvernig eru vextirnir af tryggingunni reiknaðir?+
Samkvæmt íslenskum lögum eiga vextir af tryggingarfé að endurspegla hæstu fáanlegu sparivexti. Reiknivélin fylgir nafnvöxtum Auðar fyrir hvert tímabil, þ.m.t. söguleg tilvik þar sem Auður fylgdi ekki strax stýrivöxtum Seðlabankans.
Þarf ég að greiða skatt af vöxtunum?+
Já, 22% fjármagnstekjuskattur er sjálfkrafa reiknaður af vaxtatekjum tryggingarinnar. Þessi reiknivél sýnir bæði heildarvexti og hreina vexti eftir skatt. Það er hins vegar háð lögfræðilegri túlkun hvort skattbyrðin af þessum vöxtum leggist á leigjanda eða leigusala.
Hvað ef leigusali greiðir mér ekki rétta vexti?+
Samkvæmt 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 ber leigusala skylda til að varðveita tryggingarfé á aðskildum reikningi sem ber hæstu fáanlega vexti. Ef leigusali hefur ekki greitt rétta vexti gætir þú átt kröfurétt. Leigusali hefur fjórar vikur frá lokum leigutíma til að endurgreiða tryggingarféð. Geri hann það ekki, getur þú leitað réttar þíns til að endurheimta upphæðina og krafist dráttarvaxta frá þeim degi sem vextirnir féllu í gjalddaga. Höfundur reiknivélarinnar mælir með að hafa samband við Leigjendasamtökin.
Hversu oft breytast vextirnir?+
Seðlabanki Íslands endurskoðar og breytir stýrivöxtum sínum reglulega. Þessar breytingar hafa bein áhrif á þá vexti sem ættu að reiknast á tryggingarféð þitt. Þessi reiknivél notar vaxtagögn sem sótt eru frá Seðlabankanum og Auði. Á síðunni um vaxtagögn má sjá hvenær þau voru síðast uppfærð.